Perfect Amier

It's hard to find people who will love you no matter what. I found three of them!

11.02.2008 17:35:37 / perfect-amier

ný síða

erum búin að flytja okkur um set og nýjir bloggarar komir í hópinn!

 

www.perfect-amier.bloggar.is

 

njótið

og hér með kveðjum við b.c.is 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 13:07:12 / perfect-amier

bloggar.is - klárlega !

Já, ég held að maður sé komin með nóg að blogg.central.is eftir síðustu daga ! Óþolandi að komast ekki inn og vesen og vesen !8|

Hugmynd heiðursgestsins er mér að skapi og legg ég það í atkvæðagreiðslu um að skipta ekki yfir í bloggar.is. Þá kannski líka eykst eitthvað af þessum bloggfærslum:$

Hvað varðar breytingar á meðlimaskránni þá legg ég til að Þórunn og Gurra fái aðgang sem meðlimir (að loknum þrautunum 12 - að sjálfsögðu!!) og að Hafþór heiðursgestur færist niður um skref og verði bara einn af okkur ;)

Hvað varðar Jóhann þá er þetta makalaus síða !!! Þér er frjálst að kommenta en mátt ekki nota T eða S og verður að kalla þig Hr. GH !!

Annars er allt gott að frétt af mér. Er að fara á árshátíð hjúkrunardeildar á morgun og árshátíð lagadeilda næsta laugardag 8| Nóg að gera...Í kvöld er kveðjuparty heima hjá mömmu þar sem báðir bræður mínir eru að flytja til útlanda 14. febrúar :( Jebb, óli að fara til Honduras sem skiptinemí í 1 ár og Steini til L.A. í skóla !! jebb jebb ekki slæmir 8)

Svo bara að skipuleggja næsta hitting - einhvernímann í næstu viku ??


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 17:04:19 / perfect-amier

Kvöldið í kvöld, kvöldið í kvöld, gerði drottinn guð, gerði drottinn guð....

Hæhæ,

Viktor kl. 20:00 .....

Hlökkum til að sjá ykkur,

Ykkar, Hafþór og Arna :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 13:39:42 / perfect-amier

 

Jæja!

Hvenær er næsti hittingur?

 Sunnudagskv. vs. Mánudagskv.

Eða einhver ennþá betri dagsetning....

Maður er farin að sakna ykkar ;)

 

p.s. Ég er að fara til Glasgow 14.feb nannanananí!!!

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 20:11:22 / perfect-amier

ansk

fjandinn! var búinn að blogga ógeðslega skemmtilegt og spennandi blogg, ýtti á einhvern helvítis takka, og búff-bara-búmm.... allt horfið, svo ég er kominn í fýlu og blogga um þetta ógeðslega skemmtilega og spennandi síðar meir þegar geðheilsa mín er komin í samt far!

 

leiter  


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 15:24:19 / perfect-amier

Kemst ekki...

Ég kemst ekki á kaffihús í kvöld :cry:

Jói er að fara að vinna eitthvað verkefni í kvöld þannig ég verð að vera með los nonjó !!! My bambínó ....

Góða skemmtun

Örns


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 18:59:54 / perfect-amier

velkominn ég!

Jæja góðann og blessaðann daginn!

 

þar sem að ég er nú loksins fluttur aftur í bæinn, eftir langa bið, þá fór ég fram á það á síðasta fundi að ég fengi nú fullann aðgang að þessari síðu... sem ég fékk eftir nokkrar umræður og 51% atkvæði... takk fyrir það!

 

en allavega, þá ætla ég bara að halda áfram með bloggið hennar örnu suga mama, þá er fimmtudagurinn helvtíti góður mín meginn allavega, en mig grunar þó sterklega að hún Harpa okkar sé að vinna... hehe

 

en allavega, takk fyrir helgina, skemmti mér svona líka helvíti vel og heimta að þetta verði endurteki við fyrsta tækifæri... !!

 

og svo þar sem það virðist vera mjög erfitt að ná okkur öllum saman, þá ætla ég hér með að taka frá 15 febrúar, þá verður party hjá Sigga!

 

en þangað til næst, vonandi á fimmtudag,

 

Hilsen 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 16:12:02 / perfect-amier

bloggbloggidíblogg

Takk fyrir síðast krúsíbollurnar mínar - ógó gaman !:haha:

Með kaffihúsaferð þá hvað segiði með fimtudag ? Hrafnhildur er veik og ætti að verða betri þá.

Annars er ekkert að frétta þannig .... en Hafþór sem heiðursfélagi máttu auðvita blogga eða bloggbloggiddíblogga !


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 12:15:08 / perfect-amier

Hittingur - færsla tvö !

Ég vil byrja á því að koma á framfæri kvörtun hvað varðar upplýsingaleysi aðila öðrum en þeim sem fengu tilkynningu um fundarboð !

Sagt var að ekki hefði náðst í undirritaða en undirrituð veit ekki til að slíkt ákall um fundarboð hafi henni borist !

Allavega, þá fattaði mín allt í einu að ég er ekki með pössun8| Jói er að fara í einhverja bústaðarferð sem mér var tilkynnt um 30 september sl. og átti bara að muna eftir því !!! fnuss fnuss

Til allra hamingju ætlar mamma K að redda mér :!::haha:

Þannig þetta verður ógó gaman.

Slegið: Laugardagur 19. janúar 2008. Staður: Heima hjá Sigga í Breiðholti. Plan: Ölvun

Hverjir mæta ?

Með hvað ?

Bærinn ?

(Gurra, þú manns 1000 kjell inn eða þú ert out !!!)

Sugar mama - Arna


» 18 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 13:20:06 / perfect-amier

Hittingur

hæhæ,

Það er klárlega kominn tími á að við gerum eitthvað saman ÖLL. En eins og vanalega er alltaf erfitt að finna tíma fyrir alla. Planið var að gera eitthvað næsta föstudag en Hafþór getur það ekki (og hann er náttla ómissandi!) svo var ég búin að gleyma að mín mútter á einnig afmæli á föstudaginn og er eitthvað húllum hæ hjá henni þannig ég (sem er líka ógisslega ómassandi skiljiði) kemst ekki heldur.

ÞANNIG .....

hvernig er helgin eftir það? Þá er Hafþór í fríi  :haha:

Harpa: Hvernig er staðan á þinni vinnu þá ?

GH og Þórunn: Komist þið þarna ? Er nokkuð eitthvað annað betra að gera hehe ?

Gurra: OK þú mátt koma en það kostar 1000 kall inn ! 8)

Og svo þið öll sem viljið díjóna okkur :D

Arna


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 10:03:17 / perfect-amier

2008 gengið í garð...

Gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar og takk fyrir gömlu:haha:

Ég strengdi ekkert áramótaheit en ef það hefði verið eitthvað þá væri það að hitta ykkur meira! Núna er líka Hafþór að fara að flytja í bæinn og enn meiri ástæða til að hitta ykkur hahaha....

Þannig í staðinn fyrir ritgerð um það sem ég gerði um áramótin þá ætla ég eingöngu að byðja um plan í janúar um djamm þar sem við ÖLL getum hist (við erum ekki það mörg hehe)...munið bara fámenn en góðmenn;)

Ég er laus allar helgan í janúar nema næstu helgi (4-6 jan). Ég er að fara til Eyja í jarðaför. Þannig kommentiði um hvenær þið eruð laus - þetta skal gerast. Vil ekki heyra um blebleble upptekin allar helgar bull !

Ykkar sugar mama, Arna


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 15:36:18 / perfect-amier

Jòl jòl jòl

Gledileg jól :D

Vona ad thid hafid thad oll aedislegt um jòlin, fàid fullt af pokkum, gòdan mat og fadmlog frà ollum sem ykkur thykir vaent um, thad hefur margt breyst hjà ollum à thessu àri og flest til betra, ì mìnu tilfelli thà verd èg ad vidurkenna ad èg sakna kuldans og hamborgarhryggsins og audvitad fjolskyldunnar og ykkar en er à sama tìma mjog spennt yfir ad eyda thessum fyrstu jòlum med Javier og Paulo  og ollu hinu fòlkinu sem fylgdi med ì pakkanum.

Jòlaknùs

Gudrùn


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 09:10:29 / perfect-amier

Til lukku með daginn!

Elsku Guðrún okkar!

Til hamingju með daginn, njóttu hans í botn :D

Söknum þín og hlökkum svo til að fá ykkur heim í sumar!

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 22:49:28 / perfect-amier

09/12/2007

 

Jæja sætu stelpurnar mínar! Hvað er eiginlega að frétta af ykkur?

  • GV þú verður að fara að koma með fréttir, segja okkur frá bleyjuskiftum og andvökunóttum ;)
  • Arna og Harpa eru væntanlega að læra 24/7, veit ekki hvað er að ske meira hjá þeim...
  • Hafþór er á leiðinni heim eftir fáeina daga, vá hvað verður yndislega gott að fá hann HEIM og hafa hann í RVK næsta vetur. Alltaf einhver til að fara á kaffihús : )
  • Það er ekki svo langt í 21. des! Býst við því að fólk skvetti eitthvað úr klaufunum þá! Orðið á götunni er að þið ætlið á Nasa, Búhúhú!!!
  • Mig langar miklu meira á Broadway!
  • En er svo sem alveg sama....
  • Annars er allt gott að frétta hjá mér. Á morgun verður fyrsti "opinberi" dagurinn hjá BYR! Það leggst bara nokkuð vel í mig. Alltaf gaman í vinnunni.
  •  Ég hlakka sjúklega til þegar minn heittelskaði og auðvitað þið, klárið prófin svo ég hafi einhvern til að leika við again! Annars er ég dugleg að trufla Jóa minn í lærdómnum :S Ég óska hér með eftir próflausum vinum og áhugamáli í nokkra daga svo kærastinn minn falli ekki í lögfræðinni!
  • Ég á mér samt alveg líf. Ég og Þórunn drukkum nokkrar hvítvín/rósavín á laugardaginn, very skemmtó! Endalaust slúður sem við bjuggum til og hlökkum til að deila með ykkur fljótlega!

      Annars bara... Látið ykkur líða vel, lærið eins og bilað og hlakka til að sjá ykkur sem fyrst!

Ást og friður

GH


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 11:10:03 / perfect-amier

 

Ég og Þórunn ætlum að kýkja á Apótekið annað kvöld í eitt hvítvínsglas og jafnvel einn mojito ;)

 Ég veit það er bilað að gera hjá ykkur skóla skvísunum en ef þið viljið taka ykkur smá hlé frá lestrinum þá vitiði hvar okkur er að finna...

Er ekki annars allt gott að frétta? Omg það er barasta að koma desember, jólagleði, jólamatur, jólapakkar og Hafþór :haha: gaman gaman!¨

 GH


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan